Norðurþing hélt vel sóttan kynningarfund á deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins á Bakka í gær. Á fundinum var farið yfir tillögu að iðnaðarlóð sem er hugsuð undir gagnaver en fjölmargir aðilar hafa sýnt því áhuga að koma með slík verkefni á Bakka.
Vegna tengingar á nýrri stofnlögn verður lokað fyrir kalt vatn í Grundargarði og Stóragarði fimmtudaginn 17. september frá kl. 13:00 og fram eftir degi.
Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings samþykkti á fundi sínum 08.09.2026 að kynna tillögu á vinnslustigi vegna nýs deiliskipulags á iðnaðarsvæði við Bakka. Kynningin er unnin skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Framkvæmdir við nýja götu við Auðbrekku sem mun liggja að nýju hjúkrunarheimili miðar vel áfram. Vinnuvélar Eyþórs annast gatnagerðina, en um þessar mundir er unnið að uppbyggingu götunnar og frágangi fyrir bundið slitlag sem mun koma í kjölfarið.