Sveitarstjórn Norðurþings
1.Ósk um lausn frá störfum í sveitarstjórn Norðurþings
Málsnúmer 202512017Vakta málsnúmer
2.Norðurþing, kosning í nefndir til eins árs, fjögurra ára og tilnefningar á aðalfundi 2022-2026
Málsnúmer 202205077Vakta málsnúmer
Lagt er til að skipan í stjórnir, ráð og nefndir hjá D-lista verði óbreytt frá því sem áður var samþykkt vegna tímabundins leyfis Hafrúnar sem var samþykkt var á 149. fundi sveitarstjórnar þann 5. desember 2024.
3.Viljayfirlýsing um samstarf í tengslum við uppbyggingu á Bakka
Málsnúmer 202511056Vakta málsnúmer
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að viljayfirlýsingu og felur sveitarstjóra að klára vinnu við yfirlýsinguna. Ráðið vísar málinu til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Um er að ræða viljayfirlýsingu við Heidelberg.
Samþykkt samhljóða.
4.Álagning gjalda 2026
Málsnúmer 202510101Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur yfirlit um álagningu gjalda vegna fjárhagsáætlunar 2026 og þriggja ára áætlunar 2027-2029.
Byggðarráð samþykkir að útsvarsprósenta verði áfram 14,97% vegna ársins 2026 og álagning fasteignagjalda á íbúðarhúsnæði verð óbreytt 0,450%.
Vatnsgjaldshluti í A-flokki fasteignagjalda lækki sem nemur 20% og verði 0,040% í álagningu gjalda vegna ársins 2026. Fráveitugjaldshluti í A-flokki fasteignagjalda lækki sem nemur 5% og verði 0,095% í álagningu gjalda vegna ársins 2026.
Ráðið vísar álagningu gjalda til samþykktar í sveitarstjórn.
Útsvar 14,97%
Fasteignaskattur:
A flokkur 0,450%
B flokkur 1,32%
C flokkur 1,55%
Lóðaleiga 1 1,50%
Lóðaleiga 2 2,50%
Vatnsgjald:
A flokkur 0,040%
B flokkur 0,450%
C flokkur 0,450%
Fráveitugjald:
A flokkur 0,095%
B flokkur 0,275%
C flokkur 0,275%
Sorphirðugjald:
Sérbýli 140L - 93.600 kr
Sérbýli 240L - 99.000 kr
Tvíbýli 240L - 68.050 kr
Tvíbýli 360L - 71.550 kr
Þríbýli 360L - 59.900 kr
Þríbýli 360L - 61.833 kr
6 íbúða hús 660L - 54.583 kr
8 íbúða hús 660L - 49.563 kr
8 íbúa hús 660Lx2 - 58.938 kr
16 íbúða hús 2.000L - 55.106 kr
16 íbúða hús 660Lx2 - 59.425 kr
Reykjahverfi 140L - 82.300 kr
Reykjahverfi 140L - 86.400 kr
Austursvæði 240L - 95.000 kr
Tillaga um útsvar er samþykkt samhljóða.
Tillaga um fasteignaskatt er samþykkt samhljóða.
Tillaga um lóðaleigu er samþykkt samhljóða.
Tillaga um vatnsgjald er samþykkt samhljóða.
Tillaga um fráveitugjald er samþykkt samhljóða.
Tillaga um sorphirðugjald er samþykkt samhljóða.
5.Gjaldskrár Norðurþings 2026
Málsnúmer 202510050Vakta málsnúmer
Gjaldskrár velferðarsviðs:
Lagt er til að gjaldskrár velferðarsviðs fyrir árið 2026 hækki um 4.2%.
Gjaldskrár velferðarsviðs eru eftirfarandi;
- Gjaldskrá leikskóla
- Gjaldskrá frístundar
- Gjaldskrá Tónlistarskóla Húsavíkur
- Gjaldskrá skólamötuneyta í Norðurþingi
- Gjaldskrá bókasafna
- Gjaldskrár íþrótta- og tómstundasviðs
- Gjaldskrár félagsþjónustu
Gjaldskrár skipulags- og umhverfissviðs:
Lagt er til að gjaldskrár skipulags- og umhverfissviðs fyrir árið 2026 hækki um 4.2%.
Gjaldskrár skipulags- og umhverfissviðs eru eftirfarandi:
- Gjaldskrá þjónustumiðstöðva Norðurþings
- Gjaldskrá gámaleigu og landleigu
- Gjaldskrá hunda og kattahalds
- Gjaldskrá kartöflugarða
- Gjaldskrá netaveiðileyfa í sjó
- Gjaldskrá slökkviliðs
- Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs
Gjaldskrár velferðarsviðs eru samþykktar samhljóða.
Gjaldskrár skipulags- og umhverfissviðs eru samþykktar samhljóða.
Gjaldskrár verða birtar á vef sveitarfélagsins.
6.Áætlanir vegna ársins 2026-2029
Málsnúmer 202507027Vakta málsnúmer
Meirihluti sveitarstjórnar leggur fram eftirfarandi bókun:
Fjárhagsstaða Norðurþings er stöðug og hefur farið batnandi á undanförnum árum, til að mynda hafa ekki verið tekin ný lán á þessu ári né næstu fjórum árum þar á undan. Fjárhagsáætlun ársins 2026 og þriggja ára áætlun áranna 2027-2029 eru hér lagðar fram í aðstæðum þar sem einu sinni sem oftar ríkir óvissa um þróun annars vegar atvinnumála í sveitarfélaginu og hins vegar um þróun efnahagsmála almennt m.a. með þrálátari verðbólgu en væntingar stóðu til.
Sveitarfélagið hefur orðið fyrir miklu tekjufalli á yfirstandandi ári vegna rekstrarstöðvunar PCC á Bakka og var brugðist við því með hagræðingu og með því að hægja tímabundið á fjárfestingum. Í áætluninni er áfram brugðist við þessari stöðu og er gert ráð fyrir um 180 mkr. hagræðingu á árinu 2026, sem bætist við um 70 mkr. hagræðingu á árinu 2025. Jafnframt er lögð áhersla á að forgangsraða í þágu barnafjölskyldna með því að hækka frístundastyrk, halda áfram með óbreytta þjónustu í sumarfrístund, tryggja áframhald samþættingarverkefnisins, byggingu frístundahúsnæðis á Húsavík, sundlaugar í Lundi og að hefja endurnýjun á gólfi og stúku í íþróttahöllinni á Húsavík.
Áætlunin stenst lagaleg viðmið um afkomu og fjárhagsstöðu samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Skuldahlutfallið samkvæmt ársreikningi 2024 var 112% og samkvæmt framlagðri áætlun fyrir árið 2026 er gert ráð fyrir að skuldahlutfallið verði 125,6%. Hækkun skuldahlutfalls skýrist af áætlaðri lántöku vegna fjárfestinga m.a. byggingar frístundahúsnæðis.
Samkvæmt framlagðri fjárhagsáætlun Norðurþings er gert ráð fyrir að rekstur A-hluta verði jákvæður um 145 mkr. og að rekstrarniðurstaða samstæðu verði jákvæð um 62 mkr. á árinu 2026. Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 706 mkr. í samstæðunni sem gerir um 12,92% samanborið við 14,53% í áætlun 2025. Þá er gert er ráð fyrir að laun og launatengd gjöld í hlutfalli af tekjum nemi 54,4% í samstæðu og 60,6% í A-hluta og er það í samræmi við áætlun 2025.
Þó verið sé að hagræða og draga saman í rekstri vegna tekjufalls, þá er jafnframt ljóst að áhugi á atvinnuuppbygingu á Bakka og víðar í sveitarfélaginu hefur aldrei verið meiri. Jafnframt höfum við aldrei verið nær því en einmitt nú að annað fyrirtæki en PCC BakkiSilicon ehf. taki ákvörðun um að staðsetja starfsemi sína á Bakka. Það þarf því afar lítið til svo viðsnúningur verði í rekstri sveitarfélagsins í jákvæðari átt.
Undirrituð þakka starfsfólki Norðurþings fyrir góða vinnu við gerð fjárhagsáætlunar og fulltrúum allra stjórnmálaflokka fyrir samstarfið á við vinnslu fjárhagsáætlunar.
Eiður Pétursson, fulltrúi B lista
Helena Eydís Ingólfsdóttir, fulltrúi D lista
Hjálmar Bogi Hafliðason, fulltrúi B lista
Kristján Friðrik Sigurðsson, fulltrúi D lista
Soffía Gísladóttir, fulltrúi B lista
Minnihluti sveitarstjórnar leggur fram eftirfarandi bókun:
Við sjáum fram á breytt landslag á næsta ári vegna lækkunar á tekjum fyrir sveitarfélagið. Það hefur farið fram mikil vinna inni í ráðum og hjá starfsfólki sveitarfélagsins til að reyna að mæta því. Fyrir hönd V, S og M listans vilja undirrituð leggja áherslu á að við þurfum að vera áfram vakandi yfir stöðunni. Ef í ljós kemur að áætlunin gengur ekki upp, eða að þjónustustig skerðist umfram það sem við teljum ásættanlegt, þá verðum við að vera tilbúin til að endurskoða aðgerðir og gera nauðsynlegar breytingar. Undirrituð hafa fulla trú á því að tekjurnar munu snúast okkur í vil fyrr en síðar.
Aldey Unnar Traustadóttir, fulltrúi V lista
Benóný Valur Jakobsson, fulltrúi S lista
Birkir Freyr Stefánsson, fulltrúi M lista
Ingibjörg Benediktsdóttir, fulltrúi V lista
Fjárhagsáætlun 2026 er borin undir atkvæði og er samþykkt samhljóða.
Þriggja ára áætlun 2027-2029 er borin undir atkvæði og er samþykkt samhljóða.
7.Framkvæmda- og fjárfestingaáætlun 2026 og 2027-2029
Málsnúmer 202510018Vakta málsnúmer
Byggðarráð vísar framkvæmdaáætlun framkvæmdasviðs vegna ársins 2026 og næstu þriggja ára þar á eftir til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Framkvæmdaáætlun framkvæmdasviðsvegna ársins 2026 og næstu þriggja ára þar á eftir borin undir atkvæði og er samþykkt samhljóða.
8.Fjárhags og framkvæmdaáætlun Hafnasjóðs Norðurþings 2026-2029
Málsnúmer 202509070Vakta málsnúmer
Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings samþykkir fjárhagsáætlun Hafnasjóðs fyrir árið 2026 og vísar henni til síðari umræðu í sveitarstjórn.
Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings samþykkir framkvæmdaáætlun Hafnasjóðs fyrir árin 2026-2029 og vísar henni til síðari umræðu í sveitarstjórn.
Fjárhagsáætlun Hafnasjóðs fyrir árið 2026 borin undir atkvæði og er samþykkt samhljóða.
Framkvæmdaáætlun Hafnasjóðs fyrir árin 2026-2029 er borin undir atkvæði og er samþykkt samhljóða.
9.Þjónustustefna Norðurþings
Málsnúmer 202305116Vakta málsnúmer
10.Fjárhagsáætlun Orkuveitu Húsavíkur 2026
Málsnúmer 202510076Vakta málsnúmer
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur samþykkir að leggja til við sveitastjórn að vatnsgjaldshluti í A-flokki fasteignagjalda lækki sem nemur 20% og verði 0,040% vegna álagningu gjalda vegna ársins 2026.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur samþykkir að leggja til við sveitastjórn að holræsagjaldshluti í A-flokki fasteignagjalda lækki sem nemur 5% og verði 0,095% vegna álagningu gjalda vegna ársins 2026.
Stjórn Orkuveitu Húsavíkur samþykkir fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2026.
11.Gjaldskrá rotþróargjalda 2026
Málsnúmer 202510078Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa fyrirliggjandi gjaldskrá til síðari umræðu.
12.Erindi frá Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs vegna gjaldskrárbreytinga
Málsnúmer 202511002Vakta málsnúmer
13.Starfsstöðvar fyrir óstaðbundin störf á Kópaskeri og Raufarhöfn
Málsnúmer 202512045Vakta málsnúmer
Eiður Pétursson, Framsóknaflokki
Helena Eydís Ingólfsdóttir, Sjálfstæðisflokki
Hjálmar Bogi Hafliðason, Framsóknaflokki
Kristján Friðrik Sigurðsson, Sjálfstæðisflokki
Soffía Gísladóttir, Framsóknarflokki
Samþykkt með atkvæðum Birkis, Eiðs, Helenu, Hjálmars, Kristjáns og Soffíu.
Aldey, Ingibjörg og Benóný sátu hjá.
14.Beiðni um styrk
Málsnúmer 202511024Vakta málsnúmer
Hjálmar leggur fram tillögu um að snúa ákvörðun byggðarráðs og samþykkja fyrirliggjandi styrkbeiðni.
Tillagan er borin upp til atkvæða.
Eiður, Helena, Hjálmar og Soffía greiða atkvæði með tillögunni.
Aldey, Benóný, Birkir og Ingibjörg greiða atkvæði á móti.
Kristján sat hjá.
Tillagan fellur á jöfnu.
15.Ósk um viðræður um nýjan þjónustusamning við Völsung
Málsnúmer 202509018Vakta málsnúmer
Ráðið samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög við Íþróttafélagið Völsung og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn.
Fyrirliggjandi samningur er staðfestur samhljóða.
16.Breyting aðalskipulags Stórhóll - Hjarðarholt
Málsnúmer 202409090Vakta málsnúmer
Viðbrögð við athugasemdum:
1. Skipulags- og framkvæmdaráð biðst velvirðingar á því að kynnt tillaga að aðalskipulagsbreytingu innihélt ekki réttar upplýsingar um stöðu fornminjaathugana á svæðinu. Sérstaklega var farið í fornleifaskráningu í tengslum við deiliskipulagsvinnu svæðisins. Skipulagstillaga verður lagfærð þannig að hún innihaldi réttar upplýsingar um fornminjaskráningu svæðisins.
2. Norðurþing stefnir að því á næstu vikum að kynna heildarendurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins. Þar mun koma fram hvernig sveitarfélagið vinnur með landslag og náttúrufar innan og utan þéttbýlisins auk þess sem að í greinargerð fyrirliggjandi tillögu er að finna ákvæði um að stefnt verði að því á gildistíma aðalskipulagsins að unnin verði stefna um verndun líffræðilegs fjölbreytileika. Sérstaklega verður skoðað hvernig best sé að formgera stefnu um líffræðilega fjölbreytni í skipulagsáætlunum bæði fyrir þéttbýli og dreifbýli. Horft er til þess að innleiða blágrænar ofanvatnslausnir, styrkja græn svæði og grænar tengingar innan þéttbýlis. Innan afmörkunar skipulagssvæðis Stórhóls-Hjarðarholts er hvorki að finna votlendissvæði né sérlega viðkvæm vistkerfi sem njóta verndar samkvæmt náttúruverndarlögum. Skipulags- og framkvæmdaráð telur ekki tilefni til breytinga á fyrirliggjandi tillögu að breytingu aðalskipulags.
Skipulagsfulltrúi kynnti tillögu að lagfæringu greinargerðar vegna athugasemdar Minjastofnunar.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að tillaga að breytingu aðalskipulags Stórhóls-Hjarðarholts verði samþykkt með þeirri breytingu sem tilgreind er hér að ofan.
Skipulagsfulltrúa verði falið vinna að gildistöku aðalskipulagsbreytingarinnar í samráði við Skipulagsstofnun.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og framkvæmdaráðs.
17.Breyting deiliskipulags Stórhóll- Hjarðarholt
Málsnúmer 202311126Vakta málsnúmer
1. Minjastofnun gerir athugasemdir við að fornminjar eru ekki skráðar með fullnægjandi hætti inn í deiliskipulagstillöguna skv. fyrirliggjandi fornleifaskráningu sem unnin var. Sérstaklega er tilgreint að rannsaka þarf sérstaklega skráðar minjar 6 og 7 áður en framkvæmdir hefjast á svæðinu og því sérlega mikilvægt að þær verði merktar inn á uppdrátt svo þeim verði ekki raskað af vangá.
Viðbrögð: Skipulags- og framkvæmdaráð biðst velvirðingar á því að það misfórst að færa fornminjar skv. fyrirliggjandi skráningu inn á uppdrátt. Úr því verður bætt fyrir lokaafgreiðslu. Ráðið lítur svo á að umfjöllun greinargerðar þar að lútandi sé fullnægjandi.
2. Náttúruverndarstofnun telur mikilvægt að sveitarfélagið setji sér skýra stefnu um verndun og endurheimt á líffræðilegum fjölbreytileika í skipulagsáætlunum sínum. Stefnumótun um vernd og endurheimt líffræðilegs fjölbreytileika á einnig við um skipulagsmál innan þéttbýlis.
Viðbrögð: Í fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagsbreytingu er lögð sérstök áhersla á græn svæði, trjárækt og vistvænar lausnir. Kveðið er á um að vinna skuli heildstæða hönnun fyrir græna svæðið áður en úthlutun lóða fer fram. Í greinargerð deiliskipulagsins er gert ráð fyrir að notaðar verði blágrænar ofanvatnslausnir þar sem því verður við komið til að styðja við náttúrulega hringrás vatns og bæta vatnsgæði. Umhverfismat deiliskipulagsins telur áhrif á náttúrufar óveruleg. Skipulags- og framkvæmdaráð telur umsögn Náttúruverndarstofnunar ekki gefa tilefni til breytinga á fyrirliggjandi tillögu breytingar deiliskipulags.
3. Húsfélag raðhúss að Stórhóli 25-31 gerir eftirfarandi athugasemdir við kynnta deiliskipulagstillögu.
3.1. Of langt er gengið við þéttingu byggðarinnar að mati húsfélagsins miðað við íbúðaþörf næstu árin. Sú þétting sé á kostnað grænna svæða sem nýtast til eflingar lýðheilsu og leiks.
Viðbrögð: Skipulags- og framkvæmdaráð telur að tillaga að þéttingu byggðar sé hófleg. Rýmileg svæði eru skilin eftir sem almenningsrými og þeim gert hátt undir höfði í skipulagsskilmálum. Athugasemdin gefur ekki tilefni til breytinga á skipulagstillögunni.
3.2. Húsfélagið leggst eindregið gegn því að byggt verði milli Stórhóls 25-31 og Garðarsbrautar 79-83.
Viðbrögð: Umtalsvert rými er milli tilgreindra húsa sem virðist óverulega nýtt. Ráðið telur því skynsamlegt að nýta það til uppbyggingar nýrra húsa enda er það í fullu samræmi við ákvæði landsskipulagsstefnu og leiðbeiningarrit Skipulagsstofnunar; Mannlíf, byggð og bæjarrými.
3.3. Þétting byggðar mun gera verktökum í snjómokstri erfiðara fyrir með að sinna snjóhreinsun svæðisins.
Viðbrögð: Ekki verður séð að fyrirhuguð þétting byggðar torveldi snjómokstur af götum svæðisins með afgerandi hætti. Samráð var haft við þjónustumiðstöð sveitarfélagsins þar að lútandi.
3.4. Eigendur íbúða að Stórhóli 25-31 keyptu eða byggðu íbúðir sínar vegna útsýnis frá þeim. Þeir telja að það muni rýra verðgildi eigna sinna ef byggt verði fyrir framan hús þeirra. Þau áskilja sér rétt til að leita réttar síns vegna mögulegrar skerðingar verðmæta eigna sinna komi til uppbyggingar húsa fyrir neðan þeirra hús.
Viðbrögð: Umrætt svæði er ætlað undir íbúðabyggð skv. gildandi aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030. Þétting byggðar er í samræmi við Landsskipulagsstefnu og leiðbeiningar Skipulagsstofnunar (sbr. viðbrögð 3.2).
3.5. Húsfélagið lýsir yfir áhyggjum af gatnamótum Hulduhóls við Þverholt enda sé umferð og umferðarhraði við Þverholt mikill.
Viðbrögð: Tekið er undir sjónarmið um að ný vegtenging inn á Þverholt geti falið í sér einhverja hættu eins og raunar kemur fram í greinargerð deiliskipulagsins. Það kann að verða þess valdandi að dregið verði úr heimiluðum hámarkshraða í götunni á síðara stigi. Það var hinsvegar mat ráðgjafa sveitarfélagsins að hætta af gatnatengingunni sé óveruleg og ekki meiri en víða er í þéttbýli.
Ákveði sveitarstjórn að halda til streitu uppbyggingu milli Stórhóls 25-31 og Garðarsbrautar 79-83 leggur húsfélagið til að:
3.6. Aðeins verði byggt eitt raðhús á milli lóðanna til að byggðin verði ekki eins þétt og lagt er upp með í fyrirliggjandi tillögu.
Viðbrögð: Skipulags- og framkvæmdaráð tók þá afstöðu, í samráði við skipulagsráðgjafa, að óbyggða svæðið milli núverandi lóða biði upp á ágætt rými fyrir tvær raðhúsabyggingar. Það er mikilvægt að nýta byggingarland innan þéttbýlis vel svo síður þurfi að brjóta óraskað land til uppbyggingar. Ráðið felst ekki á breytingu skipulagstillögunnar vegna athugasemdarinnar.
3.7. Staðsetning og hæð húss verði þannig að ekki skerði útsýni íbúa að Stórhóli 25-31, þ.e. að hæsti punktur nýrra bygginga fari ekki yfir hæð þaks Garðarsbrautar 79-83 m.v. hæð lóðar raðhússins.
Viðbrögð: Gerðar voru ítarlegar hæðarmælingar á svæðinu við vinnslu deiliskipulagstillögunnar. Niðurstaða þeirra athugana bentu til þess að byggja mætti raðhús á lóðunum sem myndu hafa óveruleg áhrif á útsýni af lóðinni að Stórhóli 25-31. Þessi hæðarstúdía var kynnt með sniðmyndum samhliða deiliskipulagstillögunni. Lagfæra þarf texta greinargerðar um sérskilmála fyrir Hulduhól 1-11 og 2-12 þannig að þar komi fram að hæðarmælingar voru gerðar í aðdraganda deiliskipulagsins og skýra betur hæðarskilmála fyrir uppbyggingu húsanna tveggja. Ráðið telur ekki tilefni til annara breytinga vegna athugasemdarinnar.
3.8. Heimkeyrsla að nýju raðhúsi verði frá Þverholti neðan lóðarinnar að Stórhóli 25-31.
Viðbrögð: Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir nýrri götu frá Þverholti sem tengir báðar þær raðhúsalóðir sem gerð er tillaga um í skipulagstillögunni. Ný aðkoma dregur úr óþarfa akstri upp Þverholt og niður Stórhól og hlífir þannig núverandi byggð við auknum umferðaráhrifum. Ráðið sér ekki tilefni til breytinga á fyrirliggjandi tillögu.
3.9. Hæðarmunur milli lóðarinnar að Stórhóli 25-31 og lóðar þar fyrir neðan verður umtalsverður. Farið er fram á að hæðarmunur verði ekki leystur með háum steyptum veggjum með tilheyrandi fallhættu og jarðskriði á milli lóðanna. Kostnaður við framkvæmdir vegna hæðarmunarins verði ekki á kostnað eigenda Stórhóls 25-31.
Viðbrögð: Gerð er grein fyrir þessum hæðarmun í greinargerð deiliskipulagstillögunnar og gengið út frá að lóðarhafi Hulduhóls 1-11 gangi frá þessum hæðarmun þannig að ekki skapist fallhætta eða jarðvegsskrið. Þær lausnir verða ekki nánar útfærðar í deiliskipulaginu.
3.10. Hús sem byggð verði við Hulduhól verði með mænisþökum til samræmis við nærliggjandi hús og að þar verði ekki heimilt að hækka þök.
Viðbrögð: Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir frjálsu þakformi fyrir nýju raðhúsin tvö. Það er m.a. hugsað til þess að þau megi hanna með lítilli þakhæð til að ekki komi til útsýnisskerðingar af lóðinni að Stórhóli 25-31. Skipulags- og framkvæmdaráð er ekki reiðubúið að setja kvöð um að þessi hús verði með hefðbundnu risþaki.
3.11. Bent er á að rétt væri að fjalla um djúpgáma í deiliskipulaginu og að heimilt verði að koma þeim fyrir á innan lóða eða á svæðum á forræði sveitarfélagsins.
Viðbrögð: Sveitarfélagið býður enn ekki upp á lausnir með djúpgámum og telur því ekki tímabært að fjalla um þá í skipulagsgreinargerð.
4. Helena Eydís Ingólfsdóttir er aðili að athugasemdum húsfélagsins að Stórhóli 25-31. Eftirfarandi eru þær athugasemdir sem hún gerir umfram þær sem húsfélagið gerði.
4.1. Helena telur að lóðin að Garðarsbraut 65b sé of nærri brekkunni til að hún teljist örugg sleðabrekka.
Viðbrögð: Skipulags- og framkvæmdaráð telur að nægilega mikið verði skilið eftir af sleðabrekkunni og flata norðan fyrirhugaðra byggingar að Garðarsbraut 65b til að notkun brekkunnar sem sleðabrekku verði örugg og ánægjuleg.
4.2. Helena leggur til að að vegtenging að Hulduhól verði frá Stórhóli en ekki Þverholti.
Viðbrögð: Mögulegar vegtengingar Hulduhóls voru skoðaðar við vinnslu deiliskipulagstillögunnar. Talsverður hæðarmunur er milli Hulduhóls og þess enda Stórhóls sem næstur er og því yrði vegtenging að vera brött. Ráðið telur því heppilegast að vegtengingin verði að Þverholti. Sjá einnig svar 3.8.
4.3. Helena leggur til að í sérskilmálum fyrir Hulduhól 1-11 og 2-12 verði gert ráð fyrir að aðeins verði heimilaðar fjórar íbúðir í hvoru húsi.
Viðbrögð: Skipulags- og framkvæmdaráð telur mikilvægt að nýta byggingarlandið vel og vill því halda sig við að byggðar verði a.m.k. fimm íbúðir á hvorri raðhúsalóð við Hulduhól.
5. Húsfélag Stórhóls 25-31 óskar lóðarstækkunar um 3 m til norðurs frá þinglýstum lóðarmörkum.
Viðbrögð: Skipulags- og framkvæmdaráð fellst á að lóðarmörk hússins verði færð um 3 m til norðurs. Til samræmis telur ráðið eðlilegt að lóðarmörk Hulduhóls 1-11 taki mið af breyttum lóðarmörkum Stórhóls 25-31 og stækki lítillega til norðurs.
Skipulagsfulltrúi kynnti fyrirliggjandi drög að lagfærðum skipulagsuppdrætti og greinargerð.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt með þeim breytingum sem tilgreindar eru hér að ofan. Skipulagsfulltrúa verði falið að vinna að gildistöku deiliskipulagsins skv. ákvæðum skipulagslaga.
Til máls tóku: Soffía og Hjálmar.
Tillaga skipulags- og framkvæmdaráðs er samþykkt samhljóða.
18.Aðalskipulag Norðurþings 2025-2045
Málsnúmer 202305040Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að lagfærð tillaga að Aðalskipulagi Norðurþings 2025-2045 auk tilheyrandi hliðargagna verði auglýst til almennrar kynningar skv. ákvæðum skipulagslaga. Skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að annast kynningu skipulagstillögunnar. Ennfremur er skipulags- og byggingarfulltrúa falið að senda tillögu að skráningu vega í náttúru Íslands til samþykktar hja Náttúruverndarstofnun og Vatnajökulsþjóðgarði.
Tillaga skipulags- og framkvæmdaráðs er samþykkt samhljóða.
19.Samþykkt um hunda- og kattahald
Málsnúmer 202509111Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð vísar drögum að samþykkt um hunda- og kattahald til sveitarstjórnar til síðari umræðu.
20.Ósk um framlengingu lóðar til E-Valor ehf
Málsnúmer 202511055Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að úthlutun lóðarinnar Dvergabakka 5, eða sambærilegrar lóðar, til E-Valor ehf verði framlengd með þeim skilyrðum að fullnægjandi byggingaráform verði lögð fyrir sveitarfélagið eigi síðar en í lok árs 2026 og að verklegar framkvæmdir vegna uppbyggingar hefjist eigi síðar en í lok árs 2027.
Tillaga skipulags- og framkvæmdaráðs er samþykkt samhljóða.
21.Samningur um barnaverndarþjónustu á Norðurlandi eystra
Málsnúmer 202410105Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samningsdrög og vísar til síðari umræðu í sveitarstjórn.
22.Endurskoðun samþykkta Norðurþings
Málsnúmer 202501020Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa viðbót við samþykkt sveitarfélagsins sem snúa að barnaverndarþjónustu til síðari umræðu.
23.Fundaáætlun sveitarstjórnar Norðurþings
Málsnúmer 202401031Vakta málsnúmer
22. janúar klukkan 13:00, Kópaskeri
19. febrúar klukkan 13:00, Húsavík
26. mars klukkan 13:00, Raufarhöfn
30. apríl klukkan 13:00, Húsavík
24.Fjölskylduráð - 229
Málsnúmer 2511002FVakta málsnúmer
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
25.Fjölskylduráð - 230
Málsnúmer 2511006FVakta málsnúmer
26.Fjölskylduráð - 231
Málsnúmer 2511009FVakta málsnúmer
27.Skipulags- og framkvæmdaráð - 228
Málsnúmer 2511001FVakta málsnúmer
28.Skipulags- og framkvæmdaráð - 229
Málsnúmer 2511007FVakta málsnúmer
29.Byggðarráð Norðurþings - 509
Málsnúmer 2511003FVakta málsnúmer
30.Byggðarráð Norðurþings - 510
Málsnúmer 2511008FVakta málsnúmer
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
31.Byggðarráð Norðurþings - 511
Málsnúmer 2511010FVakta málsnúmer
32.Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings - 38
Málsnúmer 2511004FVakta málsnúmer
33.Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings - 39
Málsnúmer 2511011FVakta málsnúmer
34.Orkuveita Húsavíkur ohf - 271
Málsnúmer 2511005FVakta málsnúmer
Fundi slitið - kl. 15:00.